Söfnunarreikningur vegna samstöðumálsins

Samstaða

Fyrirspurnir hafa borist um hvernig megi styrkja Jórunni og Ragnheiði vegna kostnaðar við samstöðumálið. Nú hefur verið opnaður verið söfnunarreikningur í því augnamiði.

Á bakvið sjóðinn stendur nýstofnað félag, Styr – samstöðusjóður. Sjóðurinn verður nýttur til að greiða lögfræðikostnað vegna málsins og hugsanlega sekt, ef dómur fellur á þann veg. Verði afgangur af söfnuninni er hugmyndin að sjóðurinn megi nýtast við sambærilegar aðstæður síðar meir, ef:

„skipuleggja þarf stuðningsviðburði, útbúa efni á prenti eða netinu til upplýsinga og til að vekja athygli á málstaðnum eða greiða þarf lögfræðikostnað einstaklinga eða hópa sem með aðgerðum sínum hafa barist fyrir réttlátara samfélagi innan sviða mannréttinda-, umhverfis- og dýraverndarbaráttu eða annarrar réttindabaráttu,“

eins og segir í lögum félagsins.

Reikningsupplýsingar

Styr – samstöðusjóður
Kennitala: 510219-1550
Reikningsnúmer: 0133-26-020574

Fyrir greiðslur af erlendum reikningum:

SWIFT: NBIIISRE
IBAN: IS59 0133 2602 0574 5102 1915 50